Enn reyni ég að blogga. Það hefur ekki tekizt um nokkurt skeið. Svo virðist sem tölvan hafi verið að stríða mér.
Keith
er byrjaður að spila með Rolling Stones og nú hafa þeir lagt að baki
þrenna tónleika við mikinn fögnuð viðstaddra aðdáenda.  Meira
síðar.
Blóðbankinn er á leið í nýtt húsnæði og er það þakkar- og ánægjuvert.
Nú er ljóst að 15 tónleikum The Rolling Stones verður frestað og þeir fyrstu verða í Belgrad í Serbíu og Svartfjallalandi 7. júli í sumar. Svartfellingar ákváðu fyrir nokkrum dögum að slíta sambandið við Serba. Rolling Stones láta það sjálfsagt ekki hafa nein áhrif á sig og rokka á fullu fyrir gamla kommúnista og aðra.
Um daginn var verið að kjósa mesta rokkarann í Bretlandi og Kurt Cobain varð fyrir valinu. Auðvitað hefði Keith Richards átt að vinna. Hann er 62 ára og hefur alla tíð storkað örlögunum og þó hann verði 63 ára 18. desember næst komandi heldur hann áfram. Fullur upp í tré segir sagan og hann datt beint á höfuðið, sem kann að henda marga, en ekki ýkja marga á sjötugs aldri, að minnsta ekki kosti ofan úr pálmatré. Ekki er hægt að segja að það sé bezta leiðin til að vera með pálmann í höndunum.
Tvíburnarnir okkar. Kolfinna Bjarney og Kjartan Thor áttu að fá kynnast þessu áhugamáli föður síns á sviði í Horsens hinn 8. júní, eftir nákvæmlega tvær vikur. Nú verður ekkert af því.
Keith! Elsku vinur, eina ferðina enn seturðu áætlanir mínar, og að minnsta kosti 700 þúsunda annarra, í uppnám. Gera má ráð fyrir því að flestir skili sér á tónleika Rolling Stones síðar á árinu, en óvíst er með tvíburana mína, sem eru leið yfir því hvernig fór. Óvitað er hvenær þau bera Rolling Stones augum á sviði. Þó er aldrei að vita ef þú ferð nú að fara vel með þig. Og þetta eru góð börn, nýfermd. Þau óska þér góðs bata og vona að þú farir nú að taka tillit til Patti konu þinnar og dætranna Alexöndru og Theodoru. This Place is Empty ætti að vera þér áminning um þessa einföldu staðreynd.
Láttu þér batna gamli jaskur og hugsaðu bæði um þig og aðra. Þú ert mesti rokkarinn sama hvað lesendur tónlistarblaða í Bretlandi segja. En óþarfi er að sýna það í hverri tónleikaferð.
Vonandi hefur rifbrotið frá 1998 ekki tekið sig upp. Skilaðu kveðju til Mick og stattu þig í batanum.
Vonandi er þinn gamli félagi ekki mjög reiður við þig. Nú hlusta ég á Infamy með nýrri hugsun.
Bezt er að smella Jumping Jack Flash á fóninn og ætli Get Yer Ya-Ya's verði ekki fyrir valinu með Sympathy for The Devil, Midninght Rambler, Street Fighting Man og Love in Vain svo fátt eitt sé talið og Exile on Main St(reet). í framhaldinu. Æfðu þig nú vel gæzkur og vertu í góðu formi í Belgrad og því sem á eftir fylgir.  Sennilega janfar þetta sig allt eins og amma mín sagði ævinlega.
Fróðlegt verður að fylgjast með næstu Eurovision keppni í Finnlandi. Fyllist allt af þungarokkurum frá Austur-Evrópuþjóðum? Vonandi ekki. Hitt má gjarna gerast að fram komi tónlistarmenn sem þora að víkja frá stöðluðum og gerilsneyddum eftirlíkingum af sigurlögum fyrri ára og áratuga. Bretar reyndu, en Daz blessaður með skólastelpurnar, sem reyndar sungu prýðilega, hafði ekki erindi sem erfiði og sveitatónlist Þjóðverja dugði skammt.
Sylvía Nótt dugði Íslendingum ekki að þessu sinni og fróðlegt verður að sjá hvað til bragðs verður tekið á næsta ári þó ekki væri nema vegna þess að nú erum við eina Norðurlandaþjóðin sem ekki hefur sigrað.
Rokkið á að minnsta kosti möguleika og kannski ættum við að senda Mínus eða Geir Ólafsson með sveifluna í anda Frank Sinatra. Já af nógu er að taka í íslenzkum dægurlagaheimi. Geir gæti gert það gott, þótt Evrópa hafi ekki kunnað að meta Björgvin Halldórsson, því miður. Kannski Geir og Mínus kláruðu dæmið saman.
Fróðlegt verður að fylgjast með næstu Eurovision keppni í Finnlandi. Fyllist allt af þungarokkurum frá Austur-Evrópuþjóðum? Vonandi ekki. Hitt má gjarna gerast að fram komi tónlistarmenn sem þora að víkja frá stöðluðum og gerilsneyddum eftirlíkingum af sigurlögum fyrri ára og áratuga. Bretar reyndu, en Daz blessaður með skólastelpurnar, sem reyndar sungu prýðilega, hafði ekki erindi sem erfiði og sveitatónlist Þjóðverja dugði skammt.
Sylvía Nótt dugði Íslendingum ekki að þessu sinni og fróðlegt verður að sjá hvað til bragðs verður tekið á næsta ári þó ekki væri nema vegna þess að nú erum við eina Norðurlandaþjóðin sem ekki hefur sigrað.
Rokkið á að minnsta kosti möguleika og kannski ættum við að senda Mínus eða Geir Ólafsson með sveifluna í anda Frank Sinatra. Já af nógu er að taka í íslenzkum dægurlagaheimi. Geir gæti gert það gott, þótt Evrópa hafi ekki kunnað að meta Björgvin Halldórsson, því miður. Kannski Geir og Mínus kláruðu dæmið saman.
Þessi pistill er ekki helgaður tónlistinni einni. Kannski hlusta frambjóðendurnir í Reykjavík á Rolling Stones og hafa meðtekið boðskap þeirrar mögnuðu skífu sem út kom 1969, Let It Bleed, og láta nú blóðið renna til Blóðbankans. Allt gott blóð hraustra manna, karla og kvenna, er vel þegið og vonandi eru þeir allir við góða heilsu frambjóðendurnir sem hyggjast gefa blóð á eftir erfiða kosningabaráttu. Víst er að eftir blóðgjöf líður þeim enn betur.
Ég hef hins vegar enn ekki rekizt á neinn þeirra í Blóðbankanum á mörgum ferðum mínum þangað og hefur þeim fjölgað í seinni tíð. En hér sannast að góðverkin eru ekki flókin. Að gefa af sjálfum sér og það beint frá hjartinu ætti að vera aðalstefnumál allra kosninga. Ekki satt?
Hvað um það. Let It Bleed fer beint á fóninn. ,,We all need somone we can lean on and if you want it baby you can lean on me" (úr laginu Let It Bleed eftir Mick Jagger og Keith Richards) og Blóðbankinn bíður ykkur öll velkomin.
X Blóðbankinn
Þetta var reyndar óvenju skemmtileg Eurovsion söngkeppni. Eitt og annað hefur maður upplifað í þessum efnum. Abba voru góð 1974, en Carola var hvorki jafn skemmtileg né sakleysislega falleg, of mikið botox, segir Kolfinna Bjarney, dóttir mín, sem er nýfermd. Rétt er það að minnsta kosti að hrukkurnur voru grunsamlega fáar hjá þessum tveimur sem ætluðu að sigra í keppninni (ekki sigra keppnina, því engin var mér vitanlega að keppa við keppnina heldur tóku keppendur þátt og ætluðu að sigra keppinauta sína). Anna Vissi var hrukkulaus með öllu. Glæsilegt hjá 55 ára gamalli konu, en einhvern veginn fór ég að hugsa um Pétur Pan, þann óhamingjusama mann eða eilífðardreng.
Við sem höfum gaman að rokktónlist erum himinlifandi yfir sigri Lordi og ekki skemmir það að ég samgleðst finnskum vinum mínum, enda mál til komið að Finnar hefðu sigur í þessari margfrægu keppni og vilji maður snúa út úr ambögum nútímans mætti kannski segja með sanni að Lordi hafi ,,sigrað keppnina" því þeir gerðu hið óvænta og að mati Grikkja ómögulega að hafa sigur. Enn og aftur til hamingju Finnar og við öll og óskaplega var gaman að sjá 12 stig frá okkur Íslendingum.
Hrukkurnar sigruðu, jafnvel þótt þær væru tilbúnar. Við eigum okkur uppreisnarvon, hrukkudýrin.
Enn bíð ég spenntur efti batafréttum frá Keith. Verða Rolling Stones klárir í slaginn 8. júní í Horsens?
En kjarni málsins er að Eurovision verður vonandi aldrei sama keppnin og fyrr heldur muni öll vinsæl tónlist eiga sér möguleika Evrópubúum til gleði og ánægju.
Silvía Nótt, spegill nútíma Íslendings hafði að sumu leyti erindi sem erfiði og líkt og þegar Páll Óskar tók þátt mun áhrifa hennar gæta um ókomin ár.
Nú fer ég að hlusta á Savage Rose. Guð blessi minningu Thomas Koppel. Áfram Annisette.
Enn berast fréttir af Keith Richards. Fyrir þá sem ekki vita er nefndur Keith 62 ára gamall gítarleikari rokksveitarinnar The Rolling Stones, sem flestir kannast við. Keith er sagður hafa dottið úr tré á Fiji eyjum um daginn. Reyndar hafa engar opinberar tilkynningar borizt um tildrög slyssins. Svo fór sem fór, að bora þurfti gat á höfuðkúpu hans til að hleypa út blóði. ,,Too Much Blood" (sjá fyrra blogg).
Keith er sagður á batavegi og Rolling Stones munu halda áfram, en einhverjar tafir verða á byrjun tónleikahalds sem hefjast átti í Barcelona á Spáni 27. þessa mánaðar. Meirihluti fjölskyldunnar, foreldrarnir og helmingurinn af börnunum, ætlar á tónleika með Stones sem settir höfðu verið á 8. júní í Horsens á Jótlandi í gamla sambandsríkinu okkar, Danmörku. Því verður vart trúað að einu sinni enn verði það örlög ritara að missa af eða fresta tónleikasókn í greipar þeirra Stones félaga. En svona er lífið og enn er tónleikahaldaranum, sem ætlar sér flytja sveitina til Íslands kennt um fjarveru þeirra 1998, en þá breyttist tónleikaferðin vegna falls Keith í bókasafninu heima í Connetcut. Hvernig í ósköpunum er það hægt, að kenna Íslendingi um slys rokkarans?
Beztu óskir Keith um góðan bata og varanlega heilsu. Sjáumst heilir í Horsens 8. júní og farðu nú vel með þig eins og móðir mín segir oft við mig. Þangað til hlusta ég á A Bigger Bang og sérstaklega lögin ,,This Place Is Empty", ,,Let Me Down Slow", ,,Biggest Mistake" og She Saw Me Coming".
Það er örugglega rétt að í dag er of seint að hugsa um að sjá Iggy og Stooges í Reykjavík. En það var mikil veizla fyrir eyru og reyndar augu, því gaurinn er mjög svalur og í ótrúlega góðu líkamlegu formi, ekki sízt miðað við að hann er orðinn 59 ára. Stemmingin í Listasafninu var hreint frábær og ótrúlegt hvað fólk var fljótt að taka við sér. Gera verður ráð fyrir því að ekki hafi allir verið miklir aðdáendur, en þeir hörðustu voru að sjálfsögðu fremst og hrukku í gírinn um leið og Iggy hoppað'i inn á sviðið og Stooges hófu að leika Loose af Fun House og síðan Down The Street af sömu plötu laust fyrir kl. 21:30 og síðan var keyrt á fullu í rúmlega 1 klukkustund og 20 mínútur. Næst var haldið í 1969 af Stooges og I Wanna Be Your Dog. Og svo kom TV Eye og Iggy kastaði sér fram í áhorfendaskarann og lét hann bera sig uppi eins og fyrir nærri 40 árum þegar þeir voru að byrja í upphafi ferilsins.
Áhorfendur skiluðu honum upp á sviðið og það var hreint með ólíkindum hve krafturinn var mikill í hljómsveitinni. Þrír hljóðfæraleikarar, gítar, bassi og trommur, engin flúr og engar blúndur en allt á rétt stað. fastur taktur, harður og hraður og lögin ekki slitin í sundur heldur runnu saman, Dirt, Real Cool Time og No Fun og stelpurnar úr áhorfendskaranum upp á sviði. Allt var þetta kunnuglegt frá fyrri tíð, en samt ferskt og skemmtilegt.
Svo komu lögin 1970, Fun House og LA Blues út í eitt, Skull Ring og Rock Star og Not Right, Little Doll og I Wanna Be Your Dog og uppklapp. Svo var þessu lokið og rífandi ánægja meðal þeirra sem fylltu salinn í Listasafninu, sem er reyndar prýðilegur tónleikastaður.
Mér fannst þetta gaman og Þórdísi líka og þeim sem í kringum okkur voru. Allir ánægðir með frammistöðu Stooges. Þetta voru ólíkir tonleikar þeim sem Ray Davies flutti í Háskólabíói, en gleðigjafi. Skrítið að ekki skyldi vera meiri áhugi meðal Íslendinga og þeim mun ánægjulegra að sjá margt ungt fólk og unglinga meðal tónleikagesta og hörðu áðdáendurnir voru himinlifandi.
Dr. Spock voru góðir, svolítið framandi mér en mikil leikgleði og húmor í því sem þeir gerðu.
RR ehf, sem stóð fyrir tónleikunum á þakkir skilið fyrir framtakið.
Það sem eftir sat var að eina kvöldstund var maður ekki miðaldra heldur unglingur, kannski ekki jafn óþekkur og fyrrum fyrirmyndarnemandinn og sonur kennarahjónanna, James Newell Osterberg, sem lék hlutverki Iggy Pop með glæsibrag eins og við var að búast og í nærri eina og hálfa klukkustund var tíminn án viðmiðunar. Frábært og takk RR ehf. Það er gott að vera ungur, janfvel þótt það sé að verða ungur aftur í skamma stund.
Iggy var svalur í Kastljósinu í gær og lítur ótrúlega vel út, orðinn 59 ára gamall. Nú eiga allir alvöru rokkáhugamenn, karlar jafnt og konur að drífa sig og sjá goðsögnina, sem lifði alla pönkarana og sannaði um leið að áhuginn og krafturinn er það sem skiptir máli í rokkinu jafnt og öðru í lífinu.
Margir líta vel út um sextugt, en oftast þarf að hafa fyrir því og huga að heilsunni, eins og hann gerir nú.
Iggy er ótrúlegur og gáið að því að hann stofnaði Iguanas fyrir 41 ári í Ann Arbor og tveimur árum seinna Stooges. Hljómsveitir hætta ekki, að minnsta kosti ekki séu þær góðar.
Í kvöld verður mikill kraftur og hratt og hrátt rokk.
Drífum okkur öll í kvöld og góða skemmtun.
Keith hefur greinilega slasast nokkuð alvarlega við að koma niður úr trjánum. Læknar segja að dæla þurfi blóði úr höfuðkúpu hans, en þar mun það hafa safnast, væntanlega vegna blæðinga af völdum  höfuðhöggs sem hann fékk við ótilgreindar aðstæður, sem þó er venjulega talið að hafi verið fall úr pálmatré á Fiji. Too Much Blood, svo vitnað sé til frægs lags Rolling Stones af Undercover frá 1983. Það er undarlegt hvað Undercover sækir að þessa dagana.
En læknar segja að Keith þurfi ekki að óttast og muni verða í góðu lagi 27 maí þegar Bigger Bang ferðin heldur áfram 27.maí n.k. á Spáni. Hann fær hugheilar óskir um góðan bata.
Þá er hann kominn til Íslands, golfarinn, íhaldsmaðurinn, pönkarinn og rokkarinn, Jemes Newell Osterberg, Iggy Pop sem er auðvitað fyrst og fremst hrár rokkari og kaldur karl eins og sagt var í sveitinni í gamla daga. Hún er löng leiðin frá Anna Arbor, um New York og Max Kansas City klúbbinn, London og Los Angeles að ógleymdri Berlín 1976 með David Bowie.
Og við fáum vonandi að sjá hann í fullu fjöri á morgun, náunga sem aldrei lét segja sér fyrir verkum. Það er fyndið að lagið Lust for Life skyldi vera nota til að auglýsa silgingar Caribbean Cruise skipafélagsins um Karabíska hafið. Lúxussiglingar undir formerkjum rokksins, nú eða pönksins, vilji menn það heldur.
Svalur náungi, en fyrst og fremst góður rokkari.
Ég hef verið að hlusta á Van Morrison, Pay the Devil. Hún er í lagi, þótt reyndar megi halda því fram að sveitatónlist sé vart hans sterka hlið, þá er skífan sú yfir meðallagi. Honum til hróss verður það sagt að ekki sitji kappinn auðum höndum. að auki fæst hann við eitthvað nýtt hverju sinni. Ekki staðnar hann.
Stundum mætti halda að við aðdáendurnir sitjum í stað og náum ekki að fylgjast með. What´s Wrong With this Picture? var reyndar þvílíkt snilldarverk að eitthvað hlaut að láta undan tímabundið. Sennilega gera aðdáendur of miklar kröfur til tónlistarmanna.
Reyndar er erfitt að vera sammála Morrisey um að Rolling Stones haldi áfram af þrjóskunni einni saman. Þeir taka sig til og gera nýja hluti og er þá ekki verið að tala um klifur í trjám, heldur A Bigger Bang. Sem betur fer hafa menn mismunandi skoðanir, enda væri lítið gaman væru allir sammála.
Rétt er að renna aftur í gengum djöfulinn (Pay The Devil) og gleðjast yfir því að Keith Richards sé kominn niður úr trjánum og byrjaður að leika á gítar á sjúkrahúsi. Ævinlega er eitthvað að gleðjast yfir komi fólk auga á gleðiefnið. George Ivan Morrison fer vel með sveitaslagarana og Your Cheatin' Heart er bara nokkuð gott, eins og reyndar hin lögins sem batna við hlustun.
Skyldum við nokkurn tíma fá að sjá Van á sviði með Rolling Stones?
Mér hefur orðið tíðhugsað til þessa lags af Rolling Stones skífunni Undercover frá 1983, sem fékk misjafna dóma þá, en þó leynist þar eitt og annað sem hefur elzt vel. Mjög hefur verið rætt um dóma tvo er kveðnir voru upp nýlega í Héraðsdómi Reykjavíkur. Mér verður hugsað til Keith Richards, sem sagður er hafa fallið úr pálmatré á Fiji og reyndar vilja aðrar heimildir meina að hann hafi lent í árekstri á sjóskíðum eða sæketti. Ég óska honum góðs bata og vænti þess að sjá hann í fullu fjöri í Evrópu og að ekki komi til frestunar að Evrópuferðinni að þessu sinni, eins og þegar hann rifbeinsbrotnaði í bókasafninu heima 1998.
En ég gæti tekið undir með honum: ,,I feel pretty beat up" Sennilega hefur dómurinn umdeildi fólgið í sé þau skilaboð að ekki skyldi ráðist á þá sem ætla má að séu minni máttar. Nóg af Pretty Beat Up sem er annars prýðis lag.  Mér verður hugsað til Dear Doctor af Beggers Banquet um leið og Keith eru sendar góðar óskir  um góðan bata.
Nú styttist í Iggy  Pop og það er víst langt síðan hann var Pretty Beat Up, enda búinn að losa sig við fíkniefni og annan óþverra fyrir löngu. Brian vinur minn brezkur, reyndar Skoti, hefur séð hann og heyrt á sviði mörgum sinnum og segir kraftinn ótrúlegan.  Þá er til mikils að hlakka.
Það var óneitanlega gaman að heyra í honum hjá Næturverðinum Heiðu á laugardagskvöldið og hún hvatti fólk til að nýta sér tækifærið. Það var rétt hjá Heiðu að eins og er eigum við rokkaðdáendur og tónalistar yfirleitt einstakt tækifæri til að njóta snillinga á heimsmælikvarða, heima á Íslandi. Það tækifæri eigum við að nota.
Rétt í lokin. Iggy sagði þegar hann lék á trommur með The Iguanas heima í Ann Arbor, Michigan um 1965 að það eina sem honum líkaði við brezku innrásina (tónlistar) væri The Rolling Stones og The Kinks. Skýr náungi, taktfastur og góður á trommur að sögn Wayne Kramer úr MC5 og er enn mjög brattur og rokkaður.
Þá styttist í að Iggy Pop mæti til leiks með Stooges. Litli náunginn frá Ann Arbor, var kornungur ástmaður söngkonunnar Nico, sem fræg varð með Velvet Underground á ,,Bananaplötunni" undir verndarvæng Andy Warhol.
Ferill Iggy er nátengdur David Bowie og vilja sumir rýnendur meina að Bowie hafi lært margt af honum, en endurgoldið það þegar þeir unnu saman að plötum hins fyrrnefnda Idiot og Lust For Life í ,,Berlin by the Wall" en þar héldu þeir sig og tóku upp í hinu margfræga Hansa upptökuveri og sömdu China Girl, sem gerði Iggy ríkan þegar það kom út á skífu Bowies Let´s Dance. En nóg um það sagt er að krafturinn í Stooges sé mikill og vissulega eiga fyrstu plöturnar, Stooges og Fun House, sem heitin er eftir verustað Stooges í Ann Arbor um 1970, merkan sess í sögu rokksins. Þær eru hraðar og hráar og við fáum vonandi að heyra lög af þeim, til dæmis I Wanna Be Your Dog, sem Bubbi hljóðritaði, No Fun, Fun House, 1970 og TV Eye og svo Raw Power, Search and Destroy, Gimme Danger og Your Pretty Face is going to Hell. Shake Appeal og Death Trip. allt annað væri bónus.
Sólóskífurnar eru margar, en sennilega halda þeir sig við Stooges efnið, sem er í fínu lagi.  Þetta er karftmikið rokk og ekkert gefið eftir og þeir voru betri á sviði en í hljóðveri, þótt ekki sé nú ástæða til að kvarta undan leik þeirra í hljóðverum.
Svo komst ég að því fyrir tilviljun að Politikens Rock Leksikon (Kaupmannahöfn 1995) og Gimme Danger: The Story of Iggy Pop eftir Joe Ambrose, Omnibus Press, 2004 ber ekki saman um fæðingardag James Newell Osterberg. Sú fyrri segir hann fæddan 2. apríl 1947, en hin síðari 21. apríl sama ár. Hvað um það. Hann verður orðinn 59 ára þegar hann mætir á sviðið til að skemmta okkur.
Er það ekki aðalmálið? Og nú lifir hann heilsusamlega, enda ætti enginn að taka líferni hans á yngri árum sér til fyrirmyndar.
Þetta verður góð skemmtun.
Það er gaman að því, að nú skuli efni bloggsins míns frá því fyrradag vera orðin frétt á Mbl.is. En aftur að Bigger Bang. Þar er eitt laganna Sweet Neo Con og tiltillinn vísar til ,,nýrra" íhaldsmanna, en það eru einmitt stuðningsmenn George W. Bush, sem tapaði ekki bara svítunni fínu á Imperial Hótelinu í Vinarborg í hendur Mick Jagger heldur allri hæðinni í greipar Rolling Stones, sem oftast fara sínu fram og skiptir aldurinn engu í þeim efnum. En þeir létu undan ritskoðun Kínastjórnar á tónleikunum sem haldnir voru í Shanghai 8. apríl s.l og spiluðu ekki dónaleg lög eða fóru öllu heldur ekki með dónalegu textana. Því má svo velta fyrir sér hver laga Rolling Stones séu ekki dónaleg?
Kannski segir þessi litla saga eitthvað um það hvernig valdataumar heimsins eru að umpólast. En Rolling Stones láta sér víst fátt um finnast þótt einhver lög hafi orðið útundan. Tónleikarnir voru óvenju stuttir, aðeins 18 lög og 1:45 í  heildina. Sympathy for the Devil var á sínum stað ásamt Satisfaction og Jumping Jack Flash, Paint it Black, You got Me Rocking og Gimme Shelter svo fátt eitt sé talið, að ógleymdu Start me up. Skyldu þeir hafa sungið You can make a dead man come óritskoðað.
Þessi lög hlutu ekki náð fyrir eyrum kínverskra stjórnvalda:  "Brown Sugar," "Honky Tonk Woman," "Beast of Burden," and "Let's Spend the Night Together," Almennt er talið að Rough Justice af Bigger Bang hafi þurft að víkja líka. Svo þeir eru enn að senda skilaboð til stjórnmálamanna. Ætli þeim finnist ekki bara gaman að þessu öllu saman, enda þurfti 3 Boeing 747 til að flytja 262 tonn af græjum svo sýningin héldi áfram.
En nú styttist í íhaldssama uppreisnarmanninn og golfleikarann Iggy Pop. Skyldi vera gott fyrir sköpunargáfuna að leika golf?